Athugasemdakerfi Eyjunnar lokað á sama tíma og Icesave III er dembt yfir þjóðina. Tilviljun?

Það er allavega mjög þægileg tilviljun fyrir Samfylkinguna og taglhnýtinga þeirra VG, sem voru að enda við að nauðga þriðja þjóðsvikasamningi sínum í gegnum þingið. Nauðasamning um að veðsetja íslenska skattgreiðendur í næstum hálfa öld, vegna einkabanka sem hrundi undan eigin fjárglæpastarfsemi.

Ýmislegt bendir til að þessi svikasamningur hafi verið keyrður í gegn á þinginu með mútum til Sjálfstæðisflokksins og þá hefur Mörður Árnason líklegast verið milligöngumaður þar.

Það er sennilega líka tilviljun að hinn nýi ritstjóri Eyjunnar, Karl Th. Birgisson, er fyrrverandi framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar.

Það er sennilega líka tilviljun að athugasemdakerfi fjölmiðilsins, sem hefur aldrei legið niðri svo ég muni, sé allt í einu svo laskað eða lélegt að það þurfi yfirhalningu sem tekur a.m.k. tvo sólarhringa.

Mikið af tilviljunum á stuttum tíma.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Fjárglæpastarfsemi er orðið, Theódór.  Og ég bæti við pólitískri glæpastarfsemi sem Samfylkingin eins og hún leggur sig, mestur hluti VG og hluti Sjálfstæðisflokksins eru að fremja núna með ICESAVE kúguninni.  Og að ég minnist ekki á stuðning þeirra við bankaglæpastarfsemi gegn almenningi og fyrirtækjum síðan þau komust til valda.  Það hefur ekkert lagast.

Elle_, 17.2.2011 kl. 00:19

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Opinber ástæða fyrir lokun athugasemdis Eyjunnar er vegna innleiðingar á persónuskráningu notenda. Sem þýðir að til að geta skrifa athugasemdir framvegis munu notendur þurfa að skrá sig með nafni og kennitölu.

Athyglisvert að þessi vefur skuli ætla að byrja að safna nöfnum og kennitölum fólks, eftir alla þá umræðu sem þar hefur birst að undanförnu varðandi söfnun vefsíðunnar kjósum.is á nöfnum og kennitölum fólks.

Ætli Andrés Önd og Bart Simpson verði meðal nýrra notenda Eyjunnar?

Guðmundur Ásgeirsson, 21.2.2011 kl. 13:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Theódór Norðkvist

Höfundur

Theódór Norðkvist
Theódór Norðkvist

Vettvangur fyrir það sem mér liggur á hjarta.

Nýjustu myndböndin

Sambataktar í Malmö

Sambataktar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 104722

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband