10.4.2022 | 13:36
Fjalla fjölmiðlar sem sagt ekkert um nýnasisma í Úkraínu?
Þá hlýt ég að vera að blogga við frétt sem er ekki til. Kannski er þessi bloggfærsla ekki til heldur? Geir Ágústsson, vinur minn, hvað segir þú um það?
Annars er þessi greining mbl.is prýðisgóð. Niðurstöðurnar sem ég les út úr henni, er að átylla Pútíns um afnasistavæðingu er auðvitað ekkert annað en yfirskyn til að uppfylla stórveldisdrauma brjálæðings.
Það þarf ekki annað en að lesa annað sem Pútín hefur skrifað, þar sem hann segir að Úkraína sé gerviríki og mistök fyrri leiðtoga kommúnistanna í Sovétríkjunum og að landið hafi alltaf tilheyrt Rússlandi (sem er rangt, ef út í það er farið.)
Einnig er bent á að það séu fasistahreyfingar starfandi í Rússlandi, með velþóknun Pútíns. Ég, ekki mbl.is, segi með velþóknun hans því Pútín hefur slík heljartök á fjölmiðlum og félagastarfsemi, að það væri löngu búið að berja þessar hreyfingar niður væru þær í andstöðu við vilja einræðisherrans.
Pútín hafi einnig verið í góðum tengslum við þjóðernissinnaða stjórnmálamenn eins og Marine Le Pen og Matteo Salvini, þó það sé mín skoðun að það er engan veginn hægt að kalla hreyfingar þessara einstaklinga nýnasismasamtök. Loks er bent á að tilvist 1.500 manna hreyfingar sem bendluð er við nýnasisma, getur ekki talist vera réttlæting árásar á 40 milljón manna þjóð.
Að lokum vil ég benda á að stríðsglæpir Pútíns eru af þannig gráðu að við höfum ekki séð annað eins frá því í seinni heimsstyrjöldinni og samlíkingar á Pútín við Stalín og Hitler, eru handan við hornið. Þannig að hverjir eru nasistarnir í þessari deilu?
Pútín og nasisminn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Theódór Norðkvist
Tenglar
Hjálparstarf
Ferðalög
- Samferða - vefsíða fyrir fólk sem vill vera samferða Fyrir þá sem vilja sameinast í bíla og lækka eldsneytiskostnað
- Göngum um Ísland Fróðleikur um gönguferðir. Gagnvirkt Íslandskort
- Ferðafélagið Útivist Félagsskapur sem býður upp á gönguferðir um áhugaverða staði
Líkamsrækt
Tenglar um líkamsrækt
Mannréttindabaráttan
- Félagið Ísland-Palestína Félag sem berst fyrir réttindum Palestínumanna
- Amnesty International á Íslandi Íslandsdeild mannréttindasamtakanna Amnesty International
Náttúruvernd
http://www.solistraumi.org/
Bloggvinir
- zeriaph
- eeelle
- tbs
- rosaadalsteinsdottir
- baenamaer
- ulli
- saemi7
- skulablogg
- kuriguri
- vilhjalmurarnason
- marinogn
- hreinn23
- vonin
- icekeiko
- maeglika
- fun
- axelpetur
- prakkarinn
- rafng
- kreppan
- hehau
- photo
- sjalfbodaaron
- mofi
- hlynurh
- bjarnimax
- astromix
- ea
- huldumenn
- muggi69
- jonnnnni
- gerdurpalma112
- gp
- krist
- jonvalurjensson
- bassinn
- gustafskulason
- diva73
- jvj
- maggiraggi
- toshiki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.