20.6.2008 | 21:34
Tyrkir með skemmtilegt lið
Þetta var fyrst og fremst baráttusigur. Tyrkir voru betri ef eitthvað er í framlengingunni og leikur þeirra er hraður og skemmtilegur. Þeir hafa tvívegis með baráttugleði sinni sýnt að leikurinn er ekki búinn fyrr en flautan gellur. Forvitnilegt að sjá hvernig þeim gengur gegn þýska stálinu.
Um bloggið
Theódór Norðkvist
Tenglar
Hjálparstarf
Ferðalög
- Samferða - vefsíða fyrir fólk sem vill vera samferða Fyrir þá sem vilja sameinast í bíla og lækka eldsneytiskostnað
- Göngum um Ísland Fróðleikur um gönguferðir. Gagnvirkt Íslandskort
- Ferðafélagið Útivist Félagsskapur sem býður upp á gönguferðir um áhugaverða staði
Líkamsrækt
Tenglar um líkamsrækt
Mannréttindabaráttan
- Félagið Ísland-Palestína Félag sem berst fyrir réttindum Palestínumanna
- Amnesty International á Íslandi Íslandsdeild mannréttindasamtakanna Amnesty International
Náttúruvernd
http://www.solistraumi.org/
Bloggvinir
- zeriaph
- eeelle
- tbs
- rosaadalsteinsdottir
- baenamaer
- ulli
- saemi7
- skulablogg
- kuriguri
- vilhjalmurarnason
- marinogn
- hreinn23
- vonin
- icekeiko
- maeglika
- fun
- axelpetur
- prakkarinn
- rafng
- kreppan
- hehau
- photo
- sjalfbodaaron
- mofi
- hlynurh
- bjarnimax
- astromix
- ea
- huldumenn
- muggi69
- jonnnnni
- gerdurpalma112
- gp
- krist
- jonvalurjensson
- bassinn
- gustafskulason
- diva73
- jvj
- maggiraggi
- toshiki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Nú eru 2 leikir af 4 búnir þar sem lið sem vann riðil sinn tapar fyrir liði 2 í öðrum riðli,eins og ég hef sagt þegar hingað er komið í keppnina getur allt gerst,Tyrkir bara hreinlega áttu þetta skilið í kvöld,þvílíkar lokamínútur ég var bara hreinlega þrumulostinn og gapti af undrun.
Úlfar Þór Birgisson Aspar, 20.6.2008 kl. 23:35
Vonandi verður þetta regla, að liðið í öðru sæti vinni í hinum tveimur leikjunum, því ég vil gjarnan fá Holland og Spán áfram. Mér finnst reyndar líklegt að Ítalía vinni Spán en Hollendingar hljóta að taka Rússana, þó veit maður ekki á hvaða spilum Rússar lauma.
Theódór Norðkvist, 21.6.2008 kl. 00:00
Vonandi verður þetta ekki regla......átti að standa í byrjun.
Theódór Norðkvist, 21.6.2008 kl. 00:01
Sæll og blessaður.
Við virðumst vera sammála þarna. Ég skrifaði á bloggið hjá mér fyrr í kvöld:
"Fótboltinn búinn. Ég var svo hneyksluð þegar Króatar sem ég stóð með fóru að fagna áður en leikurinn var búinn. Ég tuðaði og sagði þessum mönnum sem hlupu inná völlinn að hypja sér út aftur af vellinum. Ætli þeir hafi heyrt í mér? Leikurinn var ekkert búinn. Tyrkir náðu að skora og svo skoruðu þeir þrjú mörk í vítaspyrnukeppninni á meðan Króatar skoruðu bara eitt mark."
Þetta var alveg magnað. bæði mörkin komu alveg í restina eftir mikla baráttu. Króatar áttu mörg frábær skot t.d. í upphafi bæði í þverslá og í stöngina. svo var markmaðurinn hjá Tyrkjum alveg magnaður. Ef Tyrkir hefðu haft annað markmann væru úrslitin sennilega önnur. Hann varði og varði eins og berserkur.
Guð veri með þér.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 21.6.2008 kl. 01:24
Takk fyrir þín hlýju orð, Rósa. Ætli Króatarnir hafi ekki verið að reyna að sóa nokkrum mínútum fyrir Tyrkjum og þar með minnka möguleika þeirra til að jafna? Fótboltinn er refskák, en rétt að leikurinn er ekki búinn fyrr en lokaflautið gellur. Það sönnuðu Tyrkirnir.
Theódór Norðkvist, 22.6.2008 kl. 22:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.