20.10.2008 | 16:41
Tölvunördahornið
Þessi færsla fjallar um tölvumál og tölvunördinn í mér er að fá útrás. Virðulegt fólk lesi ekki áfram.
Mig langaði að deila með ykkur reynslu minni. Þannig er mál með vexti að ég bað þá ágætu menn frá Nexus að panta fyrir mig DVD-diskasafn sem mig langaði að fá mér. Þeir gerðu það og nú fyrir nokkrum vikum sendu þeir mér diskana í póstkröfu.
Í ljós kom hinsvegar að diskarnir voru gerðir fyrir Ameríkumarkað. Ég gat þó spilað þá í tölvunni hjá mér, en það kom viðvörun um að ég þyrfti að breyta stillingunni fyrir DVD-spilarann úr evrópska kerfinu yfir í það ameríska. Gallinn er að það er aðeins hægt að breyta milli kerfa, eða svæða réttara sagt, nokkrum sinnum.
Sem þýðir á íslensku að þegar ég er búinn að breyta stillingunum eins oft og leyfilegt er sit ég uppi með að geta aðeins spilað annað hvort DVD-diska fyrir Evrópumarkað eða Ameríkumarkað (svæðin eru reyndar fimm, en yfirleitt er maður bara að kaupa diska fyrir evrópska eða ameríska kerfið.)
Ég fór á ferðalag á Google og datt þá niður á fína lausn. Það eru til DVD-spilunarforrit sem geta spilað diska úr báðum kerfunum. Slóðin að einum er hér.
Gallinn við þennan spilara er hinsvegar að hann er deilihugbúnaður, sem þýðir að hann er nothæfur í 14 daga nema notendur séu tilbúnir að greiða fyrir hann.
Ábendingar um spilara eða forritsbút sem ekki þarf að borga fyrir eru vel þegnar.
Flokkur: Tölvur og tækni | Breytt 23.10.2008 kl. 11:15 | Facebook
Um bloggið
Theódór Norðkvist
Tenglar
Hjálparstarf
Ferðalög
- Samferða - vefsíða fyrir fólk sem vill vera samferða Fyrir þá sem vilja sameinast í bíla og lækka eldsneytiskostnað
- Göngum um Ísland Fróðleikur um gönguferðir. Gagnvirkt Íslandskort
- Ferðafélagið Útivist Félagsskapur sem býður upp á gönguferðir um áhugaverða staði
Líkamsrækt
Tenglar um líkamsrækt
Mannréttindabaráttan
- Félagið Ísland-Palestína Félag sem berst fyrir réttindum Palestínumanna
- Amnesty International á Íslandi Íslandsdeild mannréttindasamtakanna Amnesty International
Náttúruvernd
http://www.solistraumi.org/
Bloggvinir
- zeriaph
- eeelle
- tbs
- rosaadalsteinsdottir
- baenamaer
- ulli
- saemi7
- skulablogg
- kuriguri
- vilhjalmurarnason
- marinogn
- hreinn23
- vonin
- icekeiko
- maeglika
- fun
- axelpetur
- prakkarinn
- rafng
- kreppan
- hehau
- photo
- sjalfbodaaron
- mofi
- hlynurh
- bjarnimax
- astromix
- ea
- huldumenn
- muggi69
- jonnnnni
- gerdurpalma112
- gp
- krist
- jonvalurjensson
- bassinn
- gustafskulason
- diva73
- jvj
- maggiraggi
- toshiki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Í Guðs bænum ekki spila þetta of oft í tölvunni, því það er hrikalega erfitt að breyta því til baka ef þetta festist á einhverju kerfi. Það sem þú skalt gera og hef ég sjálfur gert við seinustu 4 spilara sem ég hef átt, er að "hakka" þá. Hér er síða sem inniheldur allar leiðbeiningar um hvernig slíkt er framkvæmt. Þú flettir bara upp spilaranum þínum og framkvæmir þetta, ef þú ert í miklum vandræðum hafðu þá samband. ;)
Yfirleitt er þetta bara talnasería á fjarstýringunni sem þarf að slá inn og opnar fyrir bokstaflega ÖLL kerfi og verður þú aldrei í vandræðum framar. Vona að þetta hefur hjálpað, og hefur nördin talað!
Guðsteinn Haukur Barkarson, 20.10.2008 kl. 21:06
Glæsilegt Haukur, kíki á þetta, takk.
Theódór Norðkvist, 20.10.2008 kl. 21:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.