10.6.2010 | 11:48
Heimilin eru gefendur, ekki þiggjendur
Svar ráðherrans sýnir okkur svart á hvítu að heimilin í landinu eru látin borga spilaskuldir útrásarliðsins. Afraksturinn af því nota útrásargreifarnir til að búa áfram í sínum glæsihöllum í London eða öðrum stórborgum og lifa óáreittir í makindum á kostnað skattgreiðenda. Allt í boði fulltrúa alræðis öreiganna, Steingríms J. Sigfússonar.
Þessar upplýsingar ættu líka að þagga í þeim sem bera út þær lygar að lántakendur séu að heimta að aðrir borgi fyrir þá skuldirnar. Heimilin eru nú þegar að borga fyrir endurreisn bankanna, næstum 400 milljarða aðeins vegna Seðlabankans og endurfjármögnunar bankanna föllnu.
Þetta eru peningar sem eru teknir af skatttekjum ríkisins. Hvaðan koma þeir peningar, annarsstaðar frá en úr vösum heimilanna og fyrirtækjanna? Á bak við hvert fyrirtæki stendur vitanlega a.m.k. eitt heimili.
Þegar talað er um að létta byrðum af skuldsettum heimilum er aðeins verið að tala um að minnka féflettinguna sem er í gangi í þeirra garð. Vonandi fara þeir sem tala af yfirlæti og fyrirlitningu um þá sem eru í skuldavanda að skilja þetta.
Kostar hvern íbúa 551.000 kr. | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 11:49 | Facebook
Um bloggið
Theódór Norðkvist
Tenglar
Hjálparstarf
Ferðalög
- Samferða - vefsíða fyrir fólk sem vill vera samferða Fyrir þá sem vilja sameinast í bíla og lækka eldsneytiskostnað
- Göngum um Ísland Fróðleikur um gönguferðir. Gagnvirkt Íslandskort
- Ferðafélagið Útivist Félagsskapur sem býður upp á gönguferðir um áhugaverða staði
Líkamsrækt
Tenglar um líkamsrækt
Mannréttindabaráttan
- Félagið Ísland-Palestína Félag sem berst fyrir réttindum Palestínumanna
- Amnesty International á Íslandi Íslandsdeild mannréttindasamtakanna Amnesty International
Náttúruvernd
http://www.solistraumi.org/
Bloggvinir
- zeriaph
- eeelle
- tbs
- rosaadalsteinsdottir
- baenamaer
- ulli
- saemi7
- skulablogg
- kuriguri
- vilhjalmurarnason
- marinogn
- hreinn23
- vonin
- icekeiko
- maeglika
- fun
- axelpetur
- prakkarinn
- rafng
- kreppan
- hehau
- photo
- sjalfbodaaron
- mofi
- hlynurh
- bjarnimax
- astromix
- ea
- huldumenn
- muggi69
- jonnnnni
- gerdurpalma112
- gp
- krist
- jonvalurjensson
- bassinn
- gustafskulason
- diva73
- jvj
- maggiraggi
- toshiki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Fulltrúi alræðis öreiganna passar vel við Steingrím eins og hann er orðinn í spillingarliði Jóhönnu og Össurar, Theódór. Já og skrýtnar þessar raddir þeirra sem halda því fram að skuldarar, sem voru rændir af ríkisstuddum stjórþjófum, séu að heimta að aðrir borgi skuldirnar þeirra. Þjófnaðurinn er bara ekki skuldirnar ÞEIRRA.
Elle_, 12.6.2010 kl. 23:27
Nákvæmlega Elle, verið er að láta venjulega íbúðarlántaka borga skuldir þeirra sömu og rændu þá og það ofan á þjófnaðinn sem þeir hafa orðið fyrir nú þegar.
Aldrei kom sú mótbára fram hjá Steingrími J. þegar skuldir voru felldar niður hjá liði eins og hjá Sjóvá-Milestone glæpamönnunum að menn ættu að borga sínar eigin skuldir. Hann sagðist ekki þekkja neinn töframann sem gæti látið skuldir hverfa.
Skuldir útrásarliðsins hurfu allavega mjög auðveldlega hjá Sjóvá og Högum. Hvaða töframann fann Steingrímur þá? Hann hefur ekki haft fyrir því að kynna hann fyrir okkur hinum almennu lántakendum, svo við gætum fengið hann til að láta okkar skuldir hverfa líka.
Bestu kveðjur.
Theódór Norðkvist, 13.6.2010 kl. 13:26
Já, hvaða töframann skyldi hann hafa fundið þá? Og svo bætast allar töfraskuldirnar ofan á venjulegt fólk, Theódór. Fólk hefur farið að kalla núverandi ríkisstjórn forherta djöfla, glæparáðherra og slátrara-gengi út af þessum glæp gegn skuldurum, eins og kemur fram í síðu Hjörleifs Guttormssonar og Ómars Geirssonar meðal annarra síðna. Og þau eru ótrúlega forhert.
Elle_, 14.6.2010 kl. 11:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.