Harmsaga: Ágúst Magnússon laus aftur og í vafasömum biblíuskóla

Það kemur fram á netmiðlinum Vísi að Ágúst Magnússon, barnaníðingur, sé á reynslulausn og fékk leyfi fangelsisyfirvalda til að hefja nám í biblíuskóla sértrúarsafnaðarins Livets Ord í Svíþjóð.

Fram kemur í fréttum Vísis að Ágúst hafi leigt íbúð með fjórum mönnum í tiltekinn tíma, en sé nú farinn að leigja herbergi hjá hjónum með tvö börn. Það hlýtur að setja hroll að hverjum þeim sem þekkir sögu Ágústs.

Ein forsvarsmanna Blátt áfram samtakanna gagnrýnir harðlega hve slælega er tekið á málum forhertra barnaníðinga. Hún segir að menn sem hafa framið svona alvarlega glæpi eigi alls ekki að fá reynslulausn og að engin raunveruleg úrræði séu í boði að lokinni afplánun.

Ég verð að taka undir gangrýni hennar. Það sem er líka alvarlegt í þessu máli er að umræddur biblíuskóli og sértrúarsöfnuður í Svíþjóð er þekktur fyrir andlegt ofbeldi gagnvart meðlimum sínum og vægast sagt vafasamar kenningar.

Á Wikipedia kemur fram að könnun sýndi eitt sinn að fjórði hver fyrrverandi nemandi skólans hefði reynt sjálfsvíg. Algengt var að nemendurnir (eða fórnarlömb safnaðarins) þjáðust af kvíða, sektarkennd og ýmsum öðrum tilfinningaröskunum.

Það er ljóst að hinn svonefndi Gústi guðsmaður stefni ekki í rétta átt hvað það varðar að taka á sinni brenglun. Það er ekki rétt aðferð fyrir mann í svona miklum vanda að ana beint í klærnar á hættulegum sértrúarsöfnuði. Vonandi fara ekki einhverjir vitleysingar að reyna að lækna hann með því að reka út úr honum illa anda eða muldra óskiljanlegt bull yfir hausamótunum á honum.

Saksóknari vildi Ágúst vistaðan á stofnun að lokinni afplánun

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aron Björn Kristinsson

Thad for um mig hrollur thegar eg las thessa frett. Eg er svo yfir mig gattadur hvernig islanesku rettarkerfi er hattad. Menn sem myndu fa uppi lifstidar fangelsi i BNA fyrir svona brot fa orfarra ara dom og mestan hluta sitja their ekki einu sinni inni. Eg eg kemst einhvern daginn i valdastodu i thodfelaginu verda fangelsismal ofarlega a baugi.

Einnig ad thessi madur skuli bui i husi med tveimur bornum i er virkilega ohugnarlegt!

ps. thu hefur verid klukkadur;) (thu getur sed hvad eg a vid a sidunni minni).

Aron Björn Kristinsson, 9.9.2008 kl. 21:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Theódór Norðkvist

Höfundur

Theódór Norðkvist
Theódór Norðkvist

Vettvangur fyrir það sem mér liggur á hjarta.

Nýjustu myndböndin

Sambataktar í Malmö

Sambataktar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband