26.12.2008 | 16:25
Verða Íslendingar annars flokks þegnar í eigin landi?
Sú hugsun læddist að mér skömmu eftir hrunið og nú virðist það ætla að verða raunin. Vegna verðfalls krónunnar og efnahagshrunsins geta útlendingar komið hingað og keypt það sem þá lystir, en laun venjulegs vinnandi fólks duga ekki einu sinni fyrir nauðþurftum.
Draumaríki nýfrjálshyggjunnar, til hamingju Ísland.
Ísland á hálfvirði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Theódór Norðkvist
Tenglar
Hjálparstarf
Ferðalög
- Samferða - vefsíða fyrir fólk sem vill vera samferða Fyrir þá sem vilja sameinast í bíla og lækka eldsneytiskostnað
- Göngum um Ísland Fróðleikur um gönguferðir. Gagnvirkt Íslandskort
- Ferðafélagið Útivist Félagsskapur sem býður upp á gönguferðir um áhugaverða staði
Líkamsrækt
Tenglar um líkamsrækt
Mannréttindabaráttan
- Félagið Ísland-Palestína Félag sem berst fyrir réttindum Palestínumanna
- Amnesty International á Íslandi Íslandsdeild mannréttindasamtakanna Amnesty International
Náttúruvernd
http://www.solistraumi.org/
Bloggvinir
- zeriaph
- eeelle
- tbs
- rosaadalsteinsdottir
- baenamaer
- ulli
- saemi7
- skulablogg
- kuriguri
- vilhjalmurarnason
- marinogn
- hreinn23
- vonin
- icekeiko
- maeglika
- fun
- axelpetur
- prakkarinn
- rafng
- kreppan
- hehau
- photo
- sjalfbodaaron
- mofi
- hlynurh
- bjarnimax
- astromix
- ea
- huldumenn
- muggi69
- jonnnnni
- gerdurpalma112
- gp
- krist
- jonvalurjensson
- bassinn
- gustafskulason
- diva73
- jvj
- maggiraggi
- toshiki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Skipta þarf strax um gjaldmiðil. Það er ekki hægt að búa við þessa tyggjókrónu lengur, hún brennir upp verðmæti landsmanna.
Rex 26.12.2008 kl. 20:45
Sæll Teddi minn.
Þetta minnir mig á Pólland fyrir mörgum árum. Sjómennirnir okkar sigldu oft þangað og konurnar fóru oft með. Þau gátu keypt allt mögulegt fyrir lítinn pening en á meðan var ólga í landinu og kaupmátturinn hjá almenningi var lítill og sennilega minni en hér. Það var ömurlegt ástand í Póllandi á þessum árum. Sem betur fer hafa þau það betra núna.
Ég trúi því að Guð muni snúa við högum okkar.
Vertu Guði falinn
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 26.12.2008 kl. 22:27
Já það er margt að gerast núna sem fólk hefur ekki hugsað til enda. þakka þér þessa skarpskyggni.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 26.12.2008 kl. 23:11
Sæll Theódór,
Því miður stefnir allt í að annar og jafnvel þriðji flokkur verði það sem Íslendigar þurfi að búa við næstu árin.
Kjartan Pétur Sigurðsson, 27.12.2008 kl. 00:45
Það er efnahagsstjórnin sem er sökudólgurinn, ekki krónan. Hún er bara málmur og bréf. Já, Rósa erum við að verða Pólland norðursins? Guð getur snúið við okkar högum, en það gerist aðeins ef tekið er á sjúkdómnum. Að öðrum kosti deyr sjúklingurinn.
Takk sömuleiðis, Jakobína og takk fyrir þín beittu skrif. Kjartan, einmitt.
Theódór Norðkvist, 27.12.2008 kl. 20:23
Mikið rétt. Það lýtur út fyrir það.
Ég vil samt óska þér gleðilegs nýs árs og friðar, með kærum þökkum fyrir árið sem nú fer að líða undir lok. Vonum bara að Guð blessi landið okkar og hagstjórnun á næstu árum. Megi auðlindir okkar gefa af sér margfalt í þjóðarbúið.
Bryndís Böðvarsdóttir, 29.12.2008 kl. 02:43
Takk sömuleiðis, Bryndís. Ég tek undir bænir þínar.
Theódór Norðkvist, 29.12.2008 kl. 09:19
Þetta hefur nú riðið yfir allar þjóðir reglulega í gegnum tíðina. Hvenær hafa erlendir aðilar ekki geta keypt það sem þeir hafa viljað hér á landi sem annarsstaðar í gegnum tíðina?. En aldrei gengur þetta upp í raun. Kanski er stærsta málið hvernig þjóðir ætla að tækla alþjóðavæðinguna, þar sem gjörðir fyrirtækja/einstaklinga hafa áhrif heimshorna á milli,.
Ingólfur T Garðarsson, 30.12.2008 kl. 22:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.